Fátt er svo með öllu illt

segir máltækið. Ég þurfti að koma pakka á rútuna í morgun. Var sein fyrir því að ég lenti á kjaftatörn eftir æfingar í morgun og horfði á eftir Steina á trexinum renna í suður átt. Ekki annað að gera en taka rúnt í Varmahlíð. Í bakaleiðinni heimsótti ég Helgu Sjöfn vinkonu mína í Hátúni. Það var mjög ánægjulegt. Þau hjónakornin eru ung og kraftmikil og láta kreppuna ekki aftra sér frá endurbótum á fjósinu. Fyrir vikið varð þetta hinn skemmtilegasti morgunn, ef að ég hefði ekki misst af Steina hefði ég ekki heimsótt Helgu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þau eru líka svo heppin með nágranna.

Kv.

Gísli Gunnarsson (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband