Ja, hérna

Var alveg viss um að þessi frétt væri um mig. Var nefnilega í arfa vondu skapi þegar að ég slasaði mig. Allt mælir með því að skipta ekki skapi.
mbl.is Skapvonskan leiddi til slyss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjár vikur búnar

- fimm vikur eftir. Þetta gengur bara vel.

Eftir kaffibolla og Mogga

Það er drungi yfir þjóðinni þessa dagana. Skal engan undra því að niðursveifla efnahagslífsins virðist engan endi ætla að taka. Ég álít mig vera afskaplega hagsýna en við þessum ósköpum á ég engin svör, ekki frekar en ríkisstjórnin eða stjórnarandstaðan.
Eymundur Ás kallaði til mín þegar hann var að sofna í fyrrakvöld: Mamma, veistu hvað er mikilvægast í öllum heiminum? Og svaraði sér svo sjálfur: Það er vinátta og ást. Ekki vera að flækja einfalda hluti.


Óvenju félagsleg helgi

Tungu-barnabörnJæja, þá er helgin að baki og eilífiðin aðeins styttri í annan endann. Þetta var massív helgi, fyrst var ætt yfir í Hofsós á hestamannaskrall, Tóti tók bikarinn með sér sem hann hefur fengið s.l. fjögur ár og viti menn; kom með hann aftur til baka. Hann er sem sagt hestaíþróttamaður Skagafjarðar. Fínn árangur í héraði þar sem allir eru hestamenn eða söngmenn eða hvoru tveggja. Tóti er góður í því sem hann er góður og lætur hitt bara eiga sig. Héldum fjölskylduafmælisboð í gær, það fór vel fram þrátt fyrir barnafjöld og lítið húspláss. Blessuð móðir mín er svo bjartsýn að hún uppástóð að fá hópmynd af barnabörnunum sínum. Það er þrautin þyngri að fá börnin til að stilla sér upp og horfa öll í svipaða átt í einu. Því miður vantar ættaralaukinn og elsta barnabarnið, hann Odd Kárason. Litla skottið hún Þórgunnur er lasin. Ekki við það komandi að hún taki nein lyf, vill hvorki fá panódíl í fljótandi formi eða stíl. Henni misheyrðist nefnilega og fannst ég segja "slím í rassinn". Þar við situr: Ekkert slím í rassinn á ungfrúnni góðu.Mægður, Einsi og Tengdó

Skáldin okkar góðu

Ég þarf ekki að kvarta undan hlutskipti mínu þessa dagana, því ég á þess kost að lesa spánýjar íslenskar bækur upp í rúmi meðan börnin eru í skóla og leikskóla. Í síðustu viku las ég Ofsa Einars Kárasonar. Hann er bara snillingur kallinn sá, þvílíkt sem hann er slyngur í persónusköpun. Frábærlega skemmtileg bók og dramatísk bók sem sækir efnivið í okkar glæstu fornbókmenntir. (Gott að rifja upp að við höfum ekki klúðrað öllu í gegnum tíðina).
Núna er komin á náttborðið Skaparinn eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Mér líst vel á þá bók sem af er, nóg af sársauka enda aðalsögupersónan móðir stúlku með lystarstol, sem hlýtur að vera algjörlega hræðilegur sjúkdómur. Á eftir að átta mig á hinni aðalpersónunni sem er skaparinn í sögunni, kynlífsdúkkugerðarmaður og virðist vera voðalega einn í heiminum greyið. Guðrún Eva skrifar flottan texta og massívan.
Mér hefur löngum verið sáluhjálp í lestri góðra bókmennta og hvet ykkur til að líta í bók til að lyfta andanum, nóg er af góðum bókum og við getum verið stolt af íslenskum frásagnararfi og rithöfundum. Íslenskt, já takk.


Ég spring úr stolti!

Þessar stelpur eru frábærar.
mbl.is Ísland á EM 2009
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ökuferð dauðans eða lífsins

Tóti var fölur sem nár eftir að hafa farið með perunni í ökuferð. Okkur þótti tilhlýðilegt að fara með henni svona í fyrsta sinn, sem mátti víst þakka fyrir að varð ekki í fyrsta og síðasta sinn af lýsingunum að dæma. Tóti var rétt að ná eðlilegum húðlit þegar að Urtnasan kom heim úr íslenksunámskeiðinu og við fórum að spyrja hana út í hennar ökunám. Í Asíu þykir nóg að fara á helgarnámskeið til að fá ökuréttindi enda fæstir sem hafa efni á að fá sér bíl.

Kreppubrandari

Vinur minn í prestastétt á 87 ára gamla móður sem segir gjarnan brandara og oft tvíræða:
Í kreppunni í gamla daga var kona nokkur sem þurfti að finna upp á leið til að eignast peninga. Að vel athuguðu máli ákvað hún að fara í elstu atvinnugrein kvenna sem sögur fara af, en vissi ekki hvernig hún ætti að koma sér á framfæri. Hún brá á það ráð að auglýsa: Tek að þvo þvott í þvottavél. Viðbrögð létu ekki á sér standa og hún fékk starx kúnna. Viku síðar hafði hann samband við hana aftur, þakkar henni fyrir síðast og spyr: Má ég koma og setja þvottinn í vélina hjá þér? Konan svaraði: Þetta var nú svo lítið sem þú varst með, viltu ekki bara skola úr því í höndunum?

Fatlaða fjölskyldan í túninu

Jæja, mínir dyggu lesendur, mikið er nú gott að setjast aftur niður við vélina og hamra nokkur harmkvæli niður á lyklaborðið. Meðan ég man, takk fyrir allar góðar óskir og fyrirbænir.
Nú er undan mörgu að kvarta, s.s. risjóttu veðurfari og svo er ég alls ekki búin að jafna mig á sjokkinu yfir að kannski verði ekki hægt að kaupa Prins Póló, pólska megrunarkexið lengur. Bendi prins pólófíklum á að fá sér maltakex, sem er íslenskt og stenst prinsinu algjörlega snúning eða ganga enn lengra í þjóðerniskennd og skipta yfir í harðfisk eða rófubita í staðinn??
Er búin að vera mjög dugleg í dag, tók klukkustund í að fara í sturtubað, fyrst mátti ég föndra risavaxinn smokk úr laxapoka yfir gifsið. Hef aldrei verið sterk í handavinnu enda hriplak allt saman svo ég hélt á tímabili að gifsið læki af. En það slapp. Hringdi í kaupfélagið og bað blessað fólkið að senda mér allskyns nýlenduvöru hingað heim að dyrum. Heimasætan heldur því til streytu að eiga afmæli á miðvikudaginn þrátt fyrir fötlun móður sinnar.
Lífið heldur áfram og það er strax ein vika búin af þessum sex sem ég þarf að vera í gifsinu. Hér hefur maður gengið undir manns hönd að hjálpa þessari fötluðu fjölskyldu með praktíska hluti eins og koma stúlkunni í leikskólann og heim aftur, elda mat og þetta helst sem þarf að gera. Tengdamamma er búin að vera verndari heimiilisins, búin að redda málum hér ítrekað, Víðihlíðarfjölskyldan tekið að sér áætlunarferðir á Glaðheima, Magga amma sendir kleinur í kílóavís. Þetta er kostuinn við að búa á Íslandi þrátt fyrir kreppuna og harðærið, félagslega netið er ótrúlega öflugt, allavega í kringum okkur hér í túninu.

Sigga seinheppna..

slítur hásinar eins og ekkert sé. Best að leita uppi afsláttarkortið frá TR, áður en ég skelli mér aðgerð til Akureyris. Pirrandi? Svona frekar.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband