20.11.2008 | 21:45
Að missa ekki trúna
Ég vona að enginn haldi að ég sé að missa trúna. Ég trúi á Jesú Krist og ég trúi á hið góða í heiminum. Hef enn þá bjargföstu trú að réttlætið sigri að lokum og trúi á upprisuna á efsta degi. Kannski fæ ég einhvern tíma aftur tiltrú á stjórnmálaflokkum og stjórnmálamönnum? Það verður þó varla í náinni framtíð.
Er kát og hress, heil á sál en krönk á líkama. Ný komin heim úr borginni þar sem ég lærði samtalstækni í gær og dag. Það var mjög áhugavert og mest gaman að hitta Sólveigu Höllu vinkonu mína, Gunna Steingríms og fleiri guðfræðinga á Melunum.

Athugasemdir
Kærar þakkir fyrir morgunkaffið. Ómetanlegt að byrja daginn á góðu spjalli yfir kaffi og ristuðu brauði
Steina á Steini (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 20:20
Takk fyrir hittið í Neskirkjunni .....alltaf gaman að hitta ykkur frábæru norðan konur úr fjörðunum hlið við hlið......!
Sunna Dóra Möller, 21.11.2008 kl. 20:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.