10.12.2007 | 12:56
Veik og lasin
Hér er komin upp hin versta pesti, með ógurlegri hálsbólgu og beinverkjum, ásamt hita. Ég er búin að liggja óvíg síðan á á laugardagskvöld. Nú þarf ég að biðja Guð um æðruleysi og þolinmæði, því hún ég þykist ekki hafa neinn tíma í að vera lasin. Þó er huggun harmi gegn að yngri meðlimir fjölskyldunnar hafa sloppið hingað til.
Athugasemdir
Vona að þér batni sem allra fyrst
Sunna Dóra Möller, 10.12.2007 kl. 20:22
Þetta eru Rebbarnir, mættir. Vona að þú náir þér sem allra fyrst. Þetta er ekki besti tíminn. Batakveðjur. Gugga
Gugga (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 13:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.