Haustlita helgarferð hjóna

Við hjónakornin dvöldum í góðu yfirlæti á Sel-Hótel Mývatni um helgina. Mývatnssveitin er ofboðslega falleg í haustlitunum en mig rekur ekki minni til að hafa komið þangað á þessum árstíma fyrr. Við töltum upp á Hverfjall, lágum í Jarðböðum og tíndum ber svo eitthvað sé nefnt.
Eymundur Ás var hjá frændsyskinum sínum í Tungu og brallaði þar ýmislegt að vanda (sjá nýjustu mynd). Þórgunnur fór í Stafsrétt með ömmu sinni í Saurbæ.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

úúú ... en rómó   Frábær mynd af litlu uppvakningunum .. hefði ekki viljað mæta þessu gengi í myrkri! 

Inga Heiða (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 10:56

2 Smámynd: Rúnar Birgir Gíslason

Heitir það ekki Stafnsrétt Sigga?

Eftir bænum Stafni í Svartárdal.

Bara svo Lýtingarnir fari ekki að bögga þig.

Rúnar Birgir Gíslason, 10.9.2007 kl. 12:26

3 identicon

Sæl Sigríður.  Gunnar á L.mýri sagði mér frá síðunni þinni.  Gott að hafa gleðigjafa í einsemdinni.  Takk fyrir frábæra bangsasögu.  Held að margar konur sjái sig sem bangsamömmu.  Kveðju úr Glaumbæ.

Þuríður Þorbergsdóttir (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 14:22

4 Smámynd: Sigríður Gunnarsdóttir

Jú, velkomnir allir nýir lesendur og málverndarsinnar Stabbnsrétt er réttilega ekki rétt stafsett hjá Rúnar, takk fyrir ábendinguna. S T A F N S rétt...

Sigríður Gunnarsdóttir, 11.9.2007 kl. 12:33

5 identicon

hmmm??? hvað hefur Stafn með Lýtinga að gera?? 

kveðja

Lýtingur

Lýtingur (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 11:48

6 Smámynd: Rúnar Birgir Gíslason

Fara Lýtingar ekki í Stafnsrétt?

Ok líka Seylhreppingar og Svartdælingar.

Hvað veit ég, við Sigga fórum bara í Silfrastaðarétt

Rúnar Birgir Gíslason, 12.9.2007 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband