Nú er tíminn

Skyldi tíminn hennar Jóhönnu ekki vera kominn? Veit ekki hvenær hann kemur ef ekki núna.
Aumingja Sturla, settur í úreldingu eins og gamall ryðkláfur. Ég vorkenni honum. Kristján Möller mun eflaust koma tvennum göngum til Siglufjarðar á samgönguáætlun. Við skulum öll biðja fyrir ríkisstjórninni, að hún megi verða gæfurík og þjóðinni til heilla.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú hugsar eins og ég með göngin inn í Fljót. Skil hinsvegar ekkert í því hvað konur innan Sjálfsstæðisfkokksins eru þolinmóðar og þjónkanlegar!!

Sigga (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 14:09

2 Smámynd: Rúnar Birgir Gíslason

Það verða aldrei byggð göng inn í Fljót. Þegar búið verður að opna Héðinsfjarðargöngin þá flytja allir þaðan og því óþarfi að gera önnur göng.

Annars finnst mér hann skásti kostur sem í boði var sem samgönguráðherra.

En við verðum að gefa stjórninni séns, ekki dæma fyrirfram.

Rúnar Birgir Gíslason, 24.5.2007 kl. 12:38

3 identicon

hva... voðalega ertu jákvæður Rúnar minn... hefur danska loftið svona rauðslykju áhrif á þig eða hvað hehehe ;o)

Gunna (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 19:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband