3.8.2007 | 22:58
Brekkurnar
Nú hefur Útlendingastofnun og Samtök streptókokka gert bandalag gegn mér. Serbneski sagnfræðingurinn sem er nánast búin að pakka niður í koffortið er íbúi utan EES og það er M J Ö G erfitt að fá leyfi fyrir slíkan lýð.. halló, ein lítil og krúttleg au pair stelpa sem er ekki meðlimur í neinum glæpasamtökum, ekki á sakaskrá, ekki eftirlýst af Interpole.. OG steptókokkarnir mættir aftur, algjörleg óboðnir.
En ekki að þetta sé neitt vandamál, dæli sýklalyfjum í krakkana og hef augastað á rússneskri stelpu sem býr í Þýskaland, á bara eftir að sannfæra hana um að það sé miklu skemmtilegra að passa stórkostlegu afkvæmi mín en fara til Bandaríkjanna og verða fyrir tómum vonbrigðum eða eitthvað. Þetta reddast, ekki nokkur vafi..
Góða nótt í alla nótt..

Athugasemdir
til hamingju með heimsmeistarann....þetta var glæsilegt
Marta (IP-tala skráð) 12.8.2007 kl. 09:45
Jess... karlinn rokkar, það er alveg á hreinu ;o) Skilaðu hamingjuóskum héðan úr borg óttans
Gunna (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 20:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.