22.2.2007 | 19:22
Enga klámhunda, takk..
Nú sem endranær er ég stolt af íslenskum bændum.
Framleiðendum klámefnis vísað frá Hótel Sögu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Geta hótel og gististaðir í vestrænum heimi mismunað fólki eftir starfsstéttum og starfsvettvangi? Mér er spurn.
Mér finnst þetta hið alvarlegasta mál er ekki hrifinn af uppátæki bændanna á Hótel Sögu.
M.R. (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 21:33
Já auðvitað getur fólkið sem stjórnar hótelum og gististöðum mismunað og eins allt annað fólk. Ef að enginn alvarlegri mismunun viðgengist í heiminum væri flestir í góðum málum.
Sigríður Gunnarsdóttir, 22.2.2007 kl. 23:33
Er ekki í lagi Sigríður.......... Við erum komin í flokk með Kína og Norður Kóreu með þessari fáránlegu ákvörðun. Eigum við þá að banna NATO að gista hérna vegna þess að þeir standa í stríðrekstri og drepa fólk...... Þetta toppar alla heimsku sem ég hef nokkurntíman heyrt á ævinni.......
Snuddi, 23.2.2007 kl. 12:27
Jú takk, það er sko allt í lagi hér. Sjáið nú til, þetta snýst um að andmæla klámi í víðasta skilningi en ekki fólki. Er þetta eitthvað flókið? Sem betur fer sættir stór hluti þjóðarinnar sig ekki við að hingað komi fólk sem hefur atvinnu sína af klámi, í þeim yfirlýsta tilgangi að ráða sínum. Auðvitað eru allir velkomnir hingað til lands. Hitt er annað mál hvort sé verjandi að hingað komi fólk í þeim tilgangi að funda um málefni sem elur á kvenfyrirlitningu eða öllu heldur mannfyrirlitningu? Það finnst mér barasta alls ekki í lagi. Klámiðnaðurinn verður seint talinn til heiðarlegra viðskiptagreina og ég gef ekki mikið fyrir ímyndað umburðarlyndi þeirra sem reyna að halda öðru fram.
Sigríður Gunnarsdóttir, 23.2.2007 kl. 16:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.